Sambandsstjórnarfundur 26. september

Sambandsstjórn Samiðnar hefur verið kölluð til fundar föstudaginn 26. september til undirbúnings komandi kjarasamningsviðræðum en megin verkefni fundarins er afgreiðsla á sérkröfum Samiðnar.  Fundurinn verður haldinn í húsnæði sambandsins að Borgartúni 30 og hefst kl. 10:30.

 

Dagskrá:

1. Formaður Samiðnar Hilmar Harðarson setur fundinn

2. Efnahagslegar forsendur stöðugleika í íslensku hagkerfi og vaxandi kaupmætti næstu 3 árin.  Þórarinn Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands og framkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnunefndar.

3. Kynning á málefnum þings ASÍ sem haldið verður 22.-24. október. Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ

Hádegishlé

4. Hvernig hefur tekist að ná fram markmiðum núverandi kjarasamninga? Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar

5. Kynning á sérkröfum Samiðnar. Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar

6. Umræður og afgreiðsla

7. Kosning samninganefndar Samiðnar

8. Önnur mál