Átakið „Allir vinna“ hefur sannað sig

Hilmar Harðarson formaður Samiðnar ritar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann rekur mikilvægi átaksins „Allir vinna“ fyrir bæði fólk og fyrirtæki og mikilvægi þess að það nái einnig yfir skráningarskild ökutæki.  Átakið sé ekki síst neytendum til hagsbóta því fólk leitar nú frekar til faglærðra varðandi endurbætur og viðhald í stað „svarta hagkerfisins“.  Tæplega 3.500 umsóknir hafa verið afgreiddar og endurgreiðslur nemið tæplega 2,3 milljörðum frá áramótum og fram til 18. ágúst.

>> Sjá nánar.