Lögfræðingur óskast til starfa

Lögfræðingur óskast til starfa hjá 2F Húsi Fagfélaganna.

Helstu verkefni eru að veita ráðgjöf varðandi túlkun ráðningarsamninga, kjarasamninga og laga. Aðkoma að vinnu starfshópa á vegum iðnaðarmannasamfélagsins, þátttaka í kjaraviðræðum, umsagnir og málarekstur þegar svo ber undir.
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi lokið meistaraprófi í lögfræði og æskilegt er að hafa málflutningsréttindi. Þekking og reynsla af vinnumarkaðsmálum er kostur.
Um er að ræða nýtt og spennandi starf í krefjandi starfsumhverfi.  Lögfræðingur mun heyra undir skrifstofustjóra 2F sem er þjónustuskrifstofa iðnaðarmannasamfélagsins að Stórhöfða 31.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Pálmi Finnbogason (palmi@2f.is).  Umsóknir sendist á netfangið logmadur@2f.is.

Umsóknarfrestur er til 22. september.